Fundargerð 12. maí - síðasti fundur stjórnar fyrir aðalfund
Fundur var haldinn 12. maí kl. 17:00 á Café Borg.  Reyndar var þessi fundur boðaður aukalega, þar sem síðasti félagsfundur var talinn sá síðasti þar til í haust þegar starf hæfist að nýju.  Ekki var fjölmennt á fundinum.  Stjórnin ætlar að segja af sér í haust.  Í september, fimmtudaginn 29. er meiningin að halda aðalfund og þá verður kosin ný stjórn.  Hver veit nema nýju fólki takist að glæða starfið eldmóði, en það verður að viðurkennast að fremur dauft hljóð hefur verið í félögum í vetur.  Vonandi safnar fólk kröftum í sumar, yrkir falleg ljóð og skrifar góðar sögur.  Fundi slitið.  
">
">
">
">
Mikið hræðilega hljótum við að vera leiðinleg.
Það verður yndislegt að fá nýja stjórnendur.
Birgir. Er þetta ekki Unnur hérna í sjónvarpinu? Hún er nú dálítið sein að boða fund núna. Ha?
Hvað heitir maðurinn vinstra megin ?
Hvern prýðir þessi haka?
Gleðilegt sumar!