Kristjana Emilía Guðmundsdóttir



Hver dagur þér færi
gleði og gæfu
geislandi morgunsól

Hver dagur þér gefi
farsæld og frið
fegurstu kvöldsól



Kristjana Emilía er fædd 23. apríl 1939 á Snæfellsnesi. Hún hefur verið búsett í Kópavogi síðan árið 1968 og þátttakandi í Ritlistarhópi Kópavogs frá stofnun hans.

Emilía starfar sem bókbindari og bókavörður í Bókasafni Kópavogs. Eiginmaður hennar er Jón Hilberg Sigurðsson og eiga þau 6 börn.

Kristjana Emilía er skáld Ritlistarhóps Kópavogs á Cafe Borg í nóvember