Vorjafndægur

fjallið leggur ljósrauða morgunslá
lauslega yfir kulnaðar herðar sínar
og nokkrir hrafnar fljúga með svartar fínar
fjaðrir og krunka sín á milli um þá

sem kunna að verða á vegi þeirra og tjá
sig værukærir um allar þínar og mínar
vonir og óskir, þann draum sem aldrei dvínar
draum sem hvílir flestum mönnum hjá

er dagar bráðnar frostið í fjallsins hlíð
og fjarlæg birtan sigrar myrkurkulda
hver einasta lífvera leggur sig að ómi

vorsins því lífsneistann vermir betri tíð
og vænlegasta tilverunnar hulda
fræ, það verður að fögru, heilbrigðu blómi




Eyþór Rafn Gissurarson er fæddur 21.03.62 í Reykjavík en ólst upp í
Kópavogi. Hann lauk stúdentsprófi frá máladeild MK 1982 og B.Ed. prófi frá
Kennaraháskóla Íslands 1989.  Eyþór hefur gefið út þrjár ljóðabækur sem
heita Hvítu ský (útgefandi höfundur, 1994), Öldur (útgefandi Pjaxi ehf,
1997) og Raf (útgefandi Pjaxi ehf, 2003). Þessar þrjár bækur eru til á
flestum bókasöfnum Íslands. Ljóðið Vorjafndægur úr Raf var notað í
sjúkraprófi í samræmdu prófi í íslensku fyrir 10. bekk 2004. Eyþór birti
mörg af ljóðum sínum í Lesbók Morgunblaðsins þegar Gísli Sigurðsson var
ritstjóri hennar. Eyþór hefur auk þess birt tvær greinar eftir sig í Lesbók
Morgunblaðsins, önnur er um ljóðskáldið og þýðandann Jón á Bægisá (1997) og
hin um leikrita og ljóðskáldið Jóhann Sigurjónsson (1998).

Eyþór Rafn Gissurarson