Eyvindur P. Eiríksson
Eyvindur Pétur Eiríksson fæddist 13. desember 1935 í Hnífsdal, N-Ísafirði. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1955 tók við B.A. nám í dönsku og ensku við Háskóla Íslands sem hann lauk 1964. Hann settist aftur á skólabekk rúmum tíu árum síðar og lauk Cand. mag. prófi í íslenskri málfræði frá sama skóla 1977. Eyvindur hefur í gegnum tíðina fengist við kennslu á flestum skólastigum, hefur kennt við Gagnfræðakólann á Ísafirði, Ármúlaskóla, Menntaskólann í Kópavogi, Tækniskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Hann kenndi almenna hljóðfræði og dönsku sumarlangt á kennaranámskeiðum á vegum Menntamálaráðuneytisins 1971 og gegndi lektorsstöðu við Háskólann í Helsingfors í Finnlandi veturinn 1979 - 1980. Að þeim vetri loknum tók hann við lektorsstöðu í íslensku við Kaupmannahafnarháskóla sem hann gegndi um nokkura ára skeið með aðsetur í Árnasafni. Hann hefur einnig kennt erlendum stúdentum íslensku á sumarnámskeiðum á vegum Norræna hússins. Jafnframt hefur hann starfað við leiðsögu, þýðingar og textalestur.
Eyvindur hefur frá 1987 helgað sig ritstörfum að mestu en drýgt tekjurnar með kennslu. Hann hefur einnig unnið að dagskrárgerð bæði í útvarpi og sjónvarpi, hafði umsjón með þættinum Daglegt mál á árunum 1978-1979 og tók þátt í gerð fyrstu tveggja íslenskuþátta sjónvarpsins árið 1979, en starfaði sem fréttaritari Ríkisútvarpsins í Finnlandi veturinn sem hann kenndi við Háskólann í Helsingfors. Árið 1964 var Eyvindur fulltrúi Æskulýðsráðs á ráðstefnu á vegum Evrópuráðsins í Strassbourg og átti sæti í íslenskri málanefnd í nokkur ár sem fulltrúi Rithöfundasambands Íslands. Hann hefur tekið þátt í ýmsum bókmenntauppákomum erlendis. Eftir Eyvind liggja ljóð, skáldsögur, þýðingar og greinar í fagtímaritum. Fyrsta ljóðabók hans, Hvenær?, kom út 1974 og fyrsta skáldsagan, Múkkinn, 1988. Hann hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness fyrir skáldsögu sína Landið handan fjarskans árið 1997 og var bókin tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár.

Eyvindur er búsettur í Reykjavík.

Til að fá nánari upplýsingar um höfundinn má smella á neðangreint netfang.

http://www.bokmenntir.is/bokmenntavefurinn.nsf/form/rithofundar.html?open&st=1&key=U