Hjörtur Pálsson


Úr Sofendadansi:

Ung stúlka við opinn glugga

Vor! Þú kemur á móti mér allt í einu.
Allar raddir hvísla: ég vil, ég vil.
Já, þetta er líf: að laugast regninu hreinu
og langa til

að verða eins og vatnið í syngjandi ánum
sem vex og flæðir, en nemur þó aldrei stað
að dreyma um að opnast sem brumið á trjánum
en óttast það.



Hjörtur Pálsson er fæddur 5. júní 1941 og ólst upp í Fnjóskadal og á Akureyri. Búsettur í Reykjavík 1963-68 og Kópavogi frá 1968 að undanteknum 4 árum í Kanada, Danmörku og Færeyjum. Hann er kvæntur og á þrjár dætur
Hjörtur Pálsson var skáld Ritlistarhóps Kópavogs í Cafe Borg í október 2003


Bækur Hjartar Pálssonar 

Eftir Hjört liggur mikill fjöldi þýddra skáldsagna, m.a. eftir Isaac B. Singer, ævisögur og fræðirit sem of langt væri upp að telja hér. Bent skal á frekari upplýsingar um ritstörf hans á Bókmenntavefnum.