Hrafn Andrés Harðarson

Hvassahraun

Þótt vindur hás
af vonsku blási
um Vatnsleysuströnd

er skjól í dimmum helli,
heillin mín,
í Hvassahrauni.


Hrafn Andrés Harðarson er skáld Ritlistarhóps Kópavogs í Café Borg í janúar 2004.Sýningin sem ber yfirskriftina Bláleikur að orðum er framreidd á málmplötum Gríms Marinós Steindórssonar og var opnuð með upplestri fimmtudaginn 8. janúar sl.Hrafn er fæddur að Skjólbraut 9 í Kópavogi 9. apríl árið 1948.Faðir hans var Hörður Þórhallsson; móðir Guðrún Ólöf Þór.Hann var einn af frumkvöðlum Ritlistarhóps Kópavogs, sem gaf út ljóðasöfnin Glugga 1996, Ljósmál 1997 og Sköpun 2001.Hrafn hefur skrifað smásögur, blaða og tímaritsgreinar um bókasöfn, bækur og menningarmál.Ljóð Hrafns hafa birst í tímaritum, blöðum og safnritum.

Ritaskrá Hrafns:

Eftir hann eru ljóðabækurnar:Fyrrvera, 1982 (ásamt þeim Magnúsi Gestssyni og Þórhalli Þórhallssyni),Þríleikur að orðum (myndskreytt af Hörn Hrafnsdóttur) 1990,Tónmyndaljóð ásamt Grími Marinó Steindórssyni myndlistarmanni og Gunnari Reyni Sveinssyni, tónskáldi, 1992 (ensk útgáfa 1993 og endurprentuð 1999),Hafið brennur með þýðingum á ljóðum lettnesku skáldkonunnar Vizma Belsevica, 1994 ogHlér 1996 (með tónlist Gunnars Reynis og myndum Gríms Marinós),Vængstýfðir draumar 1999 með þýðingum á ljóðum 11 lettneskra skálda og myndskreytingu eftir Lolitu Zikmane,Úr viðjum ásamt Grími Marinó Steindórssyni, 1999.Hann var ritstjóri 4. heftis Andblæs árið 1996.