Jón úr Vör

Jón úr Vör (21. janúar 1917  4. mars 2000)

Stillt og hljótt

Stillt vakir ljósið
í stjakans hvítu hönd,
milt og hljótt fer sól
yfir myrkvuð lönd.

Ei með orðaflaumi
mun eyðast heimsins nauð.
Kyrrt og rótt í jörðu
vex korn í brauð.

Frumkvöðull að stofnun Bókasafns Kópavogs og fyrsti forstöðumaður þess 1953 til 1977

Jón úr Vör Jónsson rithöfundur og bókavörður fæddist 21.janúar árið 1917 á Patreksfirði. Foreldrar hans voru þau Jónína Guðrún Jónsdóttir húsmóðir, f.3.10.1885 á Geirseyri við Patreksfjörð og Jón Indriðason skósmiður, f. 20.5.1884 á Naustabrekku í Rauðasandshreppi. Kona Jóns er Bryndís Kristjánsdóttir húsmóðir, fædd 17.ágúst 1922.

Jón stofnaði með öðrum lestrarfélag og bókasafn á Patreksfirði og þegar hann flutti í Kópavoginn stóð hann þar einnig að stofnun Lestrarfélags Kópavogshrepps sem síðar varð Bókasafn Kópavogs.

Jón nam við Unglingaskóla Patreksfjarðar einn vetur, Héraðsskólann á Núpi tvo vetur, Námsflokka Reykjavíkur einn vetur, Brunnviks folkhögskola í Svíþjóð einn vetur og Nordiska folkhögskolan í Genf í Sviss eitt sumar. Jón vann hjá blómabúðinni Flóru í Reykjavík 1936 og hjá bókaútgáfunni Heimskringlu 1937 til 1938. Hann var eigandi og ritstjóri Útvarpstíðinda 1941 til 1945 og 1952. Umboðsmaður og ritstjóri hjá Bókaútgáfu Pálma H. Jónssonar 1941 til 1951. Fornbóksali 1952 til 1962. Bæjarbókavörður í Kópavogi 1953 til 1977. Hann átti sæti í stjórn Rithöfundafélags Íslands og Rithöfundasambandsins.
Jón úr Vör hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir ritstörf sín. Hann var heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands, hlaut Riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu og þáði heiðurslaun listamanna frá 1986.
Jón úr Vör lést þann 4. mars árið 2000.

Árið 2001 ýtti Lista- og menningarráð Kópavogs úr vör árlegri ljóðasamkeppni til minningar um Jón úr Vör. Hún ber heitið Ljóðstafur og er verðlaunagripurinn einn af göngustöfum Jóns auk peningaverðlauna. Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á fæðingardegi Jóns úr Vör þann 21. janúar ár hvert.