Kjartan Árnason Kjartan Árnason fæddist 12. febr. 1959. Haustar að Nú smýgur skáldið í anorakkinn sinn hnébuxurnar og þykka sport sokkana, gönguskó setur harðfisklufsu í bakpokann smjörklípu og kakóflösku í ullarsokk minnisblokk og blýant Heldur til skógar að lesa fölnuð blöð af greinum trjánna yrkja litskrúð hrungjarnra laufa inní angurblíð ljóð um fegurð og dauða ó þú einsemd - þú hverfula líf! Hikar við jaðarinn Skógurinn fullur af skáldum Hann er einn af frumkvöðlum Ritlistarhóps Kópavogs og orðaði kynningu upplestra hópsins í Gerðarsafni fyrstu árin: "Kveðskap fyrir kvöldmat" enda fóru þeir fram kl. 17.00 - 18.00. Ritverk Kjartans Kjartan stofnaði sitt eigið forlag, Örlagið árið 1986 |
|