R I T L I S T A R H Ó P U R K Ó P A V O G S
Aðalfundur Ritlistarhóps Kópavogs haldinn í Gunnarshúsi, höfuðstöðvum Rithöfundasambands Íslands fimmtudaginn 27. september árið 2007 kl. 17.30.
Mættir voru á fundinn þessir: Anna S. Björnsdóttir, Sigríður H. Sverrisdóttir, Unnur Sólrún Bragadóttir, Eyvindur P. Eiríksson, Eyþór Gissurarson, Kristjana Emilía Guðmundsdóttir, Guðríður Lillý Guðbjörnsdóttir, Ólöf Pétursdóttir, Kristján Hreinsson, Hrafn A. Harðarson, Steinþór Jóhannsson og Hjörtur Pálsson.
Fundarstjóri og ritari var Hrafn.
Eyþór formaður setti fund kl. 17.45 og bauð fundarmenn velkomna. Hann sagðist ekki hafa frá mörgu að segja en þó kom þetta fram í máli hans:
Haldið var glæsilegt og velheppnað skáldamót með upplestri skálda frá Bretagne að undirlagi Ólafar Pétursdóttur. Fékkst til þess góður styrkur m..a. frá Kópavogsbæ og G.B. útgáfu.
Hann hefur sett upp vefsíðu undir MySpace og fjallaði nokkuð um kosti þess og galla. M.a. var lykilorði hans stolið og lenti hann í einhverjum hremmingum vegna þess. Nokkrar umræður spunnust um þessi mál. Unnur Sólrún hefur sett upp vefsíðu um hópinn; Ólöf benti á sína síðu sem vistuð er í Frakklandi og kostar ekki neitt. Með því að greiða um kr. 4000 á ári væri hægt að fá vefslóðina Ritlistarhopur Kopavogs á sama stað og Unnur Sólrún vistar sína síðu. Eyþór hvatti menn og til þess að gæta að vörnum á vefsíðum og Interneti og benti á FireFox samskiptapakkann annarsvegar og hins vegar benti Kristján á Frisk.is sem er vírusvörn frá Friðriki Skúlasyni. Var það mál manna að vísa til nýrrar stjórnar að huga að þessum málum fyrir Ritlistarhópinn.
Þá ræddi Eyþór um Leiðabókina og stöðu mála þar. Öll ljóðin eru komin í hús ásamt þýðingum. Karl Wernersson gæti hugsanlega styrkt útgáfu hennar. Voru fundarmenn á því að bíða með að leita styrkja hjá auðmönnum uns útséð væri með stuðning bæjaryfirvalda. Mætti vel hugsa sér að leita til einkaaðilja ef hópurinn hygðist t.d leita útrásar.
Loks gat hann um upptökur á lögunum góðu við ljóð félagsmanna, það mál væri geymt en ekki gleymt og lægi í salti um sinn. Er þar annað mál til úrlausnar nýrrar stjórnar, þ..e útgáfa geisladisks með ljóðum og lögum.
Fundarstjóri þakkaði formanni störf hans og fékk hann dúndrandi lófaklapp viðstaddra.
Í fjarveru Sigrúnar Oddsdóttur, fjársýslumanns, bað fundarstjóri Kristján Hreinsson að lesa yfirlit um greiðslustöðu frá 1. janúar 2006 til dags dato. Var gerður góður rómur að því og klappað fyrir Sigrúnu. Staðan er sæmileg og peningar til í sjóðum.
Þá las fundarstjóri upp þær tillögur sem lágu fyrir fundinum frá þeim sem skrifuðu undir:
Undirritaðir félagar leggja til að í stað formanns verði 3ja manna Stjórnarráð, sem annast framkvæmdir hópsins, undirbýr upplestra og skipuleggur fundi og aðra mannfagnaði.
Allir félagar hafa tillögurétt og eru hvattir til virkrar þátttöku enda er Ritlistarhópur Kópavogs sannkölluð grasrótarhreyfing....
Við hyggjumst hafa samband við formann Lista- og menningarráðs Kópavogs og óska eftir góðu samstarfi, að bærinn styrki hópinn með því að kosta útgáfu Leiðarbókarinnar og kaupi ákveðinn fjölda eintaka af henni. Einnig að greitt verði fyrir upplestra á vegum Ritlistarhópsins og síðast en ekki síst verður farið fram á að hópurinn fái framvegis aðstöðu í Gerðarsafni til upplestra. Þessar óskir verða fljótlega kynntar fyrir formanni Lista- og menningarráðs og þá verður lagt fram formlegt bréf þess efnis. Undir það munu skrifa: Guðríður Lillý Guðbjörnsdóttir, Hjörtur Pálsson, Hrafn Harðarson og Sigríður Helga Sverrisdóttir.
Stjórnarráðið skiptir með sér verkum eftir viðfangsefnum og öðrum efnum og ástæðum.
Stefnt verði að: Afhendingu Steinsins, e.t.v. á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember n.k.; upplestri skálda úr hópnum í október og jólagleði að vanda í desember.
Þetta var samþykkt á fundinum með lófaklappi. Fundarstjóri lagði til nöfn fjögurra skálda sem hefðu lýst áhuga á að vera með en þeir eru: Arngrímur Vídalín Stefánsson, Þór Stefánsson, Þórhallur Þórhallsson og Valdimar Tómasson.
Anna S. Björns benti á Hallberg Hallmundarsonar hefði áhuga á að ganga í hópinn. Var þessum nýju félögum fagnað með lófaklappi. Hrafn hvatti að lokum félaga til að finna nýja áhugasama til að ganga til liðs við hópinn.
Að þessu loknu voru almennar umræður um málefni hópsins, óskað eftir tillögum um höfunda til að lesa upp, stungið upp á að fenginn verði leiðbeinandi í framsögn til að stæla félagana og brýna til frekari dáða; Steinþór sagðist vera með bók á leiðinni, Eyvindur kynnti sína nýjustu bók, glóðvolga, og heitir GLASS, Anna S. sagði frá nýjustu bók sinni sem er á ensku. Ólöf er að gefa út nýja bók á næstunni og mun m.a. verða með kynningu á henni á Næsta bar í næsta mánuði.
Samþykkt var að stefna að því að hafa fastan fundartíma í Kaffibúðinni í Hamraborg milli kl. 17 og 19 á fimmtudögum – og þá mæta þeir sem geta til skrafs og ráðabruggs – að því gefnu að Kaffibúðin sé opin lengur en til kl. 6.
Að þessu búnu var fundi slitið; fundarmenn gerðu sér að góðu veitingar og loks lásu sumir fyrir suma þegar sumir voru farnir til annarra erinda....