FUNDARGERÐIR
Fundargerð
Ritlistarhópur Kópavogs
18. nóvember 2003


Mættir voru:
Sigrún Guðmundsdóttir, Birgir Svan Símonarson, Eyþór Rafn Gissurarson, Emelía Guðmundsdóttir, Margrét Björnsdóttir, Elín Ebba Gunnarsdóttir, Steinþór Jóhannsson, Lillý Guðbjörnsdóttir og fundarritari Unnur Sólrún Bragadóttir

Steinþór hóf fundinn með því að gleðja viðstadda með bréfi frá Kópavogsbæ þar sem tilkynnt var um 180.000 kr. styrk.

Elín Ebba fræddi fundargesti um væntanlega ljóða (söng) bók hópsins svo og gerð geisladisksins sem ætlað er að henni fylgi.  Elín Ebba sagði að þegar væri helmingur þeirra ljóða sem um ræddi frágenginn.  Kristján Hreinsson hafði tekið að sér að ræða við einhver tónskáld en lag við ljóð hans ætlar Ingibjörg Þorbergs að semja. 
Birgir Svan sagði að gáfulegt væri að leita strax tilboða í þennan 20 laga pakka og síðan að byrja upptökur og undirbúningsvinnu.  Steinþór taldi mikilvægt að fá einhvern einn til útsetninga svo heildarsvipur næðist á diskinn.  Rætt var um mögulegan kostnað við útgáfu og hafði Kristján Hreinsson slegið á lágmarksupphæð 250.000 (í fyrra) og þá í samvinnu við Eddu útgáfu.  Eyþór Rafn lýsti sig fúsan að taka að sér upptöku en til þess ætti hann öll tiltæk ,,tól".  Hann sagði að kostnaður hjá homum yrði 2000 kr. á tímann.
Um þetta spunnust nokkrar umræður og var niðurstaðan sú að Elín Ebba ætlar að tala við Magnús Kjartansson, Jónas Ingimundarson , Pétur Hjaltested og Eyþór.  Ebba minnti á að við upphaf hugmyndarinnar hefði Jónas Ingimundarson lagt áherslu á einfaldleika útsetninga, helst bara píanó (harmonikku, svo auðvelt yrði að flytja lögin sem víðast). 

Steinþór talaði um ljóðasýningar á Kaffi Borg.  Eyvindur tekur nú við af Emmu og Hrafn kemur síðan.  Ákveðið var að leita til a.m.k. tveggja aðila sem hugsanlega yrðu þá næst í röðinni. 

Að lokum var komið að jólamatnum.  Birgir Svan stakk upp á því að meðlimir kæmu í Hvammshús (sérskólann við Fífuhvamm 20) og fengju sér bita. Hann og Unnur mundu sjá um að sjóða hafragraut ofan í liðið (grín)  útbúa dýrindis steik handa meðlimum.   Þessu var vel tekið og var ákveðið að matarveislan  yrði 5. desember , föstudag kl. 19:00.  Fólk kæmi sjálft með drykkjarföng og yrði þá rukkað um einhverja smáupphæð í matarkostnað. 

Þá var ekki fleira á dagskrá og fundi slitið.

Unnur Sólrún

Ritlistarhópur Kópavogs
Fundur 2. desember 2003

Mættir: Lillý, Hrafn, Elín Ebba, Eyvindur, Steinþór, Emilía, Sigrún, Eyþór, Birgir, Unnur

Fyrsta mál á dagskrá var hljómdiskur og bók sem Elín Ebba hefur verið að vinna við að undanförnu.  Hún upplýsti að líklega væru komin tónskáld fyrir öll ljóðskáldin, ýmislegt væri í athugun varðandi upptökur og undirleik.  Magnús Kjartansson mælti með að ekki yrði farið af stað fyrr en allt væri tilbúið, þá skyldi leitað tilboða í allan pakkann í einu.  Nokkrar umræður spunnust um hvort nótur skyldur vera með í bókinni og niðurstaðan varð sú að svo skyldi vera. 

Annað mál var Ljóðlist á Kaffi Borg.  Eigandinn vill fá upplestra í desember og var ákveðið að þeir yrðu fimmtudagskvöldið 11. des. kl. 20:00 og laugardaginn 20. des. kl. 16:00.  Hér með eru sem flestir hvattir til að mæta og lesa upp einhver ljóð eftir sig. Eyvindur P. Eiríksson er búinn að setja upp sýningu á sínum verkum og verður hún formlega opnuð á fimmtudagskvöld klukkan 8 (Kaffi Borg).  Vonandi sjá sem flestir félagar sér fært að mæta.  Hrafn mun svo setja upp sýningu í janúar og Unnur Sólrún í febrúar.  Reynt verður að fá Þórð Helgason í mars.

Næst var það heimasíðan sem fundarritari hefur verið að dunda sér við.  Spurning var hvort fundargerðir ættu heima á slíkum stað, eða hvort ekki væri æskilegt að þær væru sjáanlegar öllum sem það vildu.  Niðurstaðan var sú að ef einhver fundargerð þætti eitthvert leyniplagg, þá skyldi því sleppt að setja hana á heimasíðuna, en annars þá væri það í lagi.

Þá var það jólamaturinn sem verður í Hvammshúsi föstudaginn þann 5. des.  Nokkrir skráðu sig til viðbótar svo nú er vel orðið ,,fundarfært". 

Ákveðið var að breyta fundartímum.  Eftir áramót verða þeir á fimmtudögum klukkan 7 í stað þriðjudaga klukkan 8 en á sama stað í Kórnum í Bókasafni Kópavogs.

Fundir eftir áramót verða sem hér segir: 
8. jan. , 22. jan.,  
5. feb., 19. feb., 
4. mars. 18. mars,                         
8. apríl, 22. apríl,
6. maí og 20. mai.                           Fleira ekki tekið fyrir.  Fundi slitið. Unnur Sólrún

RITLISTARHÓPUR KÓPAVOG S
FUNDUR HALDINN FIMMTUDAGINN 5.feb. 2004

9 meðlimir voru mættir á fund. 

Kristjana upplýsti að Sigurður Bragason væri nú að ljúka við þau þrjú lög sem hann hefði tekið að sér að semja vegna væntanlegrar bókar hópsins og ljóðadisks.  Lítillega var rætt um upptökur á tónleikum og möguleg gæði slíkrar upptöku.

Þá barst talið að upplestrum.  Stungið var upp á að heimsækja einhverjar stofnanir, t.d. Litla Hraun a.m.k. einu sinni á ári og var vel tekið í það.

Fleira markvert ekki tekið fyrir en félagar lögðu leið sína á opnun ljóðasýningar Unnar á Café Borg.


RITLISTARHÓPUR KÓPAVOG S
FUNDUR HALDINN FIMMTUDAGINN 19.feb. 2004

8 félagar voru mættir.

1.Steinþór kynnti Menningardaga í Kópavogi sem verða þann 5.  11. maí.  Hann sagði að hópnum byðist Salurinn eina kvöldstund í þessari Menningarviku og viðraði þá hugmynd að þau ljóð með lögum sem þegar eru tilbúin yrðu m.a. flutt þetta kvöld.  Auk þess skyldi hugað að upplestri og öðru því sem gæti fyllt dagskrána.  Reynt yrði að fá Kópavogsbæ til að taka upp dagskána og gefa hana út á diski.
Samþykkt var að fá Valgeir Skagfjörð sem kynni þetta kvöld og tók Kristján Hreinsson að sér að tala við hann um málið.  Enn fremur á að tala við Guðrúnu Gunnarsdóttur um flutning á a.m.k. þremur lögum.  Allir voru sammála um að þetta væri veglegt tilboð og skyldi vanda vel til dagskrár. Sigurður Geirdal bæjarstjóri hefur lýst sig tilbúinn til að opna eða slíta dagskránni eftir því hvað betur hentar.

2.Hrafn lagði til að fá meðlimi Ritlistarhópsins til að yrkja um Kópavogsbæ sem verður 50 ára á næsta ári.  Tekið var vel í þá tillögu.

3.Unnur mun taka niður ljóðasýningu sína, sunnudaginn 29. febrúar og Þórður Helgason mun opna nýja sýningu fimmtudaginn 4. mars. 

4.Sagt var frá hagyrðingakvöldi á vegum Lionsklúbbs Kópavogs sem verður haldið 25. febrúar kl. 20:00 í Lionshúsinu, Auðbrekku, Kópavogi.  Félagar eru eindregið hvattir til að mæta og njóta góðrar skemmtunar. 

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið.



Ritlistarhópur Kópavogs
Fundargerð 22. janúar 2004

Mættir voru 9 félagar, Steinþór, Þórður, Hrafn, Sigríður, Sigrún, Lillý,  Ebba, Eyþór og Unnur.

1.Steinþór tilkynnti að Kristján Hreinsson hefði tekið að sér það verkefni sem Elín Ebba og Sigríður höfðu með höndum (lengst af Elín Ebba), að gera næstu bók ásamt hljómdiski að veruleika a.m.k. næsta ár. 
2.Dollý Nielsen langar að ganga í Ritlistarhópinn og var það talið sjálfsagt.  Hingað til hafa engar inntökureglur verið, menn bara mæta á fundi og taka til starfa.  Ekki er í bígerð að breyta því.
3.Steinþór spurði hvort hópurinn samþykkti að senda áskorun til Lundarbarna þess efnis að þau gæfu út verk föður síns.  Steinþóri var falið að koma þessari áskorun ,,prívat" og persónulega áleiðis og samþykkti hann það.
4.Steinþór lýsti ánægju sinni með Bestu Bókabúðina á vefsíðu hópsins og tóku fundargestir undir. 
5.Unnur Sólrún verður næst til að setja upp sýningu í Café Borg nú á eftir Hrafni.  Mælst var til að sú sýning yrði sett upp 5. febrúar sem er fimmtudagur og þá upplagt að fundargestir fari beint af fundi og verði við opnun. Enn fremur var rætt lítillega um auglýsingar og umfjöllun fjölmiðla á þessum sýningum og þótti mönnum hlutur okkar rýr.  Reynt verður að bæta úr því á næstunni.


Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið og fundargestir á hraðferð að horfa á leik Íslendinga og Slóvena í handbolta.


RITLISTARHÓPUR KÓPAVOG S
FUNDUR HALDINN FIMMTUDAGINN 8. JANÚAR 2004



Fyrsti fundur ársins var haldinn í Kórnum í Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 8. janúar. 
Mættir voru 8 félagar.

Fyrst tók til máls Elín Ebba.  Hún hefur unnið að undirbúningi útgáfu ljóðabókar og hljómdisks sem ef til vill mun koma út einhvern tímann á árinu.  Segja má að Elín Ebba sé búin að koma málinu langleiðina og brátt verða komin lög við öll ljóðin sem eiga að vera í bókinni.
Elín Ebba sagði nú af sér starfinu, enda kannski sjálfsagt að einhverjir aðrir leggi þarna hönd á plóg því þetta hefur verið mikil vinna.  Við í stjórn Ritlistarhópsins þökkum hér með Elínu Ebbu fyrir óeigingjarnt og frábært starf fyrir hönd félagsins en vonum jafnframt að við eigum eftir að njóta krafta hennar sem félaga um ókomna tíð.  Ef einhver hefur áhuga á að taka að sér starf Elínar Ebbu og fylgja útgáfu bókar og disks síðustu sporin, þá endilega hafðu samband.

Steindór varpaði þeirri hugmynd fram, hvort ekki mætti notfæra sér heimasíðu hópsins og setja þar upp bóksölu.  Félagar mundu senda inn lista yfir þær bækur (eigin verk) sem margir eiga í fórum sínum.  Verðlagning er verk höfunda.  Hugmyndin var samþykkt einróma.  Undirrituð mun sjá um að koma bókunum á heimasíðuna.  Af þessu tilefni er hér með auglýst eftir nafni á netbókabúðina okkar.  Jafnframt eru félagar beðnir að senda lista yfir þær bækur sem þeir vilja setja í ,,búðina" ásamt útsöluverði.  Netfangið er: unnursol@hotmail.com.

Varðandi ljóðasýningar á Kaffi Borg, þá opnaði Hrafn sýningu sína strax eftir fund á fimmtudag, Unnur Sólrún mun svo sýna í febrúar og Þórður Helgason í mars.  Ekki hefur enn verið ákveðið hver verður í apríl en það er æskilegt að það verði kona svo alls jafnræðis sé gætt.

Minnt var á Ljóðstaf Jóns úr Vör.  Afhending verðlauna verður í Salnum 21. janúar og eru félagar eindregið hvattir til að mæta.

Hrafn minntist á þann fjölda ljóðabóka sem safnast hefði á barborð Kaffi Borgar.  Þar væri tæplega lengur pláss fyrir verk þeirra höfunda sem væru að sýna hverju sinni.  Þetta væri mál sem þyrfti að ræða við eiganda staðarins og finna lausn.  T.d. mætti setja upp hyllu fyrir bækur og tímarit svo þetta færi betur.

Eyþór minntist á slóð heimasíðunnar :  http://Ritlist.homestead.com/1html  Slóðin er frekar löng og spurning um að leita á önnur mið.  Ástæða þessa er sú að undirrituð er með ársáskrift hjá Homestead, sem vistar síður og þess vegna er vistunin á okkar síðu ókeypis.  En sé almennur vilji fyrir breytingu er sjálfsagt að kanna það. 

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið.

Unnur Sólrún

Ritlistarhópur Kópavogs

Fundur 5. mars. 2004.
Átta félagar voru mættir,  þar af 1 nýr (Dollý) og 1 gestur (Pétur).

Steinþór kynnti fyrir fundarmönnum að þann 6. maí, fimmtudag frá kl. 20:00, þá hefði Ritlistarhópurnn Salinn og ættum við að sjá um skemmtiatriði það kvöld.  Þetta kvöld er í menningarviku Kópavogsbæjar. 
Ákveðið hefur verið að þau lög og ljóð sem munu verða á hljómdiskinum sem unnið er að og þegar hafa fengið flutningsmann, munu verða flutt þetta kvöld í Salnum.  Dóra Steinunn Ármannsdóttur mun syngja við ljóð Elínar Ebbu, Jóns Bjarmans og Unnar Sólrúnar.  Ljóð Guðrúnar Guðlaugsd. verður sungið af Ásgerði Júníusdóttur.  Davíð Viðarsson syngur ljóð eftir Kristjönu Emilíu, Valgeir Sigurðsson og Þórð Helgason.  Einar Clausen syngur ljóð eftir Steinþór og Eyþór Rafn.

Enn er ekki komið svar við möguleikum á upptöku dagskrárinnar.  Ákveðið að kanna hvort Kristján Hreinsson gæti fengið aðstoð Ríkisútvarpsins til verksins.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið.

Félagar fylktu svo liði á Café Borg þar sem Þórður Helgason opnaði ljóðasýningu.


Ritlistarhópur Kópavogsbær
Fundur 18. mars 2004

Mættir voru 8 félagar.

Eyvindur sagði frá opnun sýningar Júlíusar Samúelssonar í BÚR húsinu á Granda.  Sýningin mun standa einhvern tíma og eru félagar hvattir til að kíkja við og kynna sér verk Júlíusar.

Steinþór lagði til að sótt yrði um styrk hjá Lista- og menningarráði Kópavogs vegna yfirstandandi uppákomu í Salnum, upptökum og útgáfu.  Unni falið að ganga frá málinu.

Minnt var á að nú er tími til að sækja um styrk sem bæjarlistamaður Kópavogs. 

Nú líður að síðari hluta ljóðasýningar Þórðar Helgasonar á Café Borg.  Geirlaugur Magnússon mun sýna í Maí en enn vantar ljóðskáld í apríl.  Ákveðið var að leita til Gylfa Gröndal og kanna hvort hann hefði áhuga.

Birgir Svan tók upp nokkra punkta til umhugsunar fyrir félaga.  Spurning hvort ekki sé hægt að tryggja frið á kaffihúsinu þær 10 mín. sem kynning og upplestur standa yfir opnunarkvöld hverrar sýningar.  Spurning hvort ekki fáist einhver vanur eða sérmenntaður bókmenntamaður / kona til að tala um skáld hvers mánaðar ef til vill kvöldið eftir opnun.  Einnig spurning hvort kvikmyndatökumaður tæki upp upplestrana til varðveislu fyrir hópinn.

Steinþór á fyrir höndum fund með Vigdísi Esradóttur og Eddu Jónsdóttur vegna dagskrárinnar í Salnum.  M.a. um dagsetningu á viðburðinum.

Tryggvi Líndal nýbúinn að gefa út bók og þá bók tileinkar hann RITLISTARHÓPI KÓPAVOGS.

Þorvarður Hjálmarsson búinn að segja sig úr Ritlistarhópnum.

Birgir Svan sagði frá litlum hópi ungs fólks í Hafnarfirði sem nú hefur samastað í húsi Regnbogabarna.  Spruning hvort félagar í Ritlistarhópnum væru fáanlegir til að lesa upp með þeim, ef til vill næsta haust.  Málið verður kannað.

Fleira ekki tekið fyrir.  Fundi slitið.



Ritlistarhópur Kópavogs
Fundur í Kórnum í Bókasafni Kópavogs 1. apríl 2004


Fundarefni var sú dagskrá sem fyrirhuguð er í Salnum þann 7. maí næstkomandi.

Fyrst var farið vel yfir listann sem áður hafði verið sendur út.  Þar var náttúrlega urmull af ,,feilnótum", innslegnum af undirritaðri.  Allt var þó leiðrétt samviskusamlega.
Gylfi Gröndal hefur samþykkt að setja dagskrána og kynnir verður Valgeir Skagfjörð.
Lögin/ljóðin eru alls 19 og verður skipt niður fyrir og eftir hlé.  Steinþór varpaði fram þeirri hugmynd að myndum úr starfi Ritlistarhópsins yrði varpað á vegg undir flutningi eftir hlé og var vel tekið í það.
Rætt var um aðgangseyri.  Félagar voru sammála um að slæmt væri að hafa aðgangseyri, jafnvel þó hann yrði í lægri kantinum.  Fólk sækti ekki svona samkomur nema þær væru ókeypis.  Steinþór og Lillý ætluðu að kanna hvort Gunnar I. Birgisson mundi samþykkja að fella niður leigu á Salnum og jafnvel að kanna hvort Sparisjóðurinn fengist til að kosta dagskrána gegn t.d. auglýsingu á miðum. 
Þá var leitað eftir nafni á dagskrána og kom Sigríður Helga með uppástungu sem hreif alla: Vorflugur.
Að lokum var ákveðið að næsti fundur yrði haldinn 21. apríl kl. 19.

Fundi slitið.

Unnur Sólrún


Ritlistarhópur Kópavogs
Fundargerð 15. apríl 2004

Sigríður Lillý sagði frá fundi með Gunnari Birgissyni varðandi beiðni um frí afnot af Salnum þann 7. maí.  Gannar sagði að ekki væri hægt að fella niður gjöld, en möguleiki væri á styrk og hann skyldi kanna málið.
Þá var skýrt frá fundi með Jónasi Ingimundarsyni.  Hann hafði nú skoðað nótur og útsetningar á 10 lögum/ljóðum, en lýsti sig aðeins ánægðan með útsetningar fjögurra þeirra.  Enn fremur sagðist Jónas ekki geta spilað undir en benti á aðra undirleikara. 
Það að Jónas skyldi ekki vera tilbúin að spila undir kom nokkrum fundarmanna á óvart og töldu þeir sig hafa fengið þau skilaboð (upplýsingar) að hann ætlaði að verða undirleikari. 
Raddir voru uppi um litla möguleika á að geta boðið upp á vandaða og góða dagskrá á miðað við að aðeins væru 3 vikur fram að 7. maí og mikil vinna eftir.  Sumir voru harðorðir og vildu meina að þessi þessi dagskrá hefði verið fyrirfram dæmd þar sem t.d. væri blandað saman svo ólíku efni og litlar líkur á því að einhver heildarmynd næðist.   Fundarmenn virtust nokkuð sammála því að tíminn væri of stuttur til stefnu, miðað við hve margt vantaði upp á svo dagskráin yrði fullbúin.  Steinþór vildi að unnið yrði að dagskránni þó ekki tækist að koma saman nema 10 lögum.  Kristján Hreinsson tók að sér að kanna hvort mögulegt væri að fá útsetjara og undirleikara og þá fyrir hvaða upphæð það yrði.  Samþykkt var að bíða með endanlega ákvörðun þar til á miðvikudaginn 21. apríl , en þá verður fundur kl. 7 í Kórnum.   Þá verður enn fremur vitað hver eða hvort styrkur fáist frá Lista- og menningarráði Kópavogs sem skiptir miklu ef greiða á fyrir aðkeypta vinnu. 

Fleira ekki tekið fyrir.

Unnur Sólrún

Fundur 5. mars 2004.  (Smellið hér til að lesa fundargerð)
Ritlistarhópur Kópavogs
(Fundargerðir eftir dagsetningum).


1. Fundur 15.apríl 2004 (Smellið hér til að lesa fundargerð)
2. Fundur 1. apríl 2004.  (Smellið hér til að lesa fundargerð)
3. Fundur 18. mars 2004  Smellið hér til að lesa fundargerð)
4.
5. Fundur 7. okt. 2004.  (Smellið hér til að lesa fundargerð)
6. Aðalfundur 14. okt. 2004 ( Smellið hér til að lesa fundargerð
7. Fundur 28. okt. 2004 (Smellið hér til að lesa fundargerð)
8. Fundur 27. jan. 2005.(Smellið hér til að lesa fundargerð)
Ritlistarhópur Kópavogs

Félagsfundur  7.okt. 2004


Átta félagar voru mættir á fund.  Formaðurinn var ekki á landinu og því var ákveðið að fresta aðalfundi um viku en fundurinn gerður að venjulegum félagsfundi.

Rætt var um væntanlega upplestra.  Lillý ætlaði að ítreka við Gunnar Birgisson hvort hann væri tilbúinn að fylgja því eftir að við fengjum að lesa í Gerðarsafni, t.d. einu sinni í mánuði milli kl. 17-18.

Birgir Svan talaði um að heiðra Elísabetu Jökuldóttur fyrir starf hennar sem rithöfundur sem lengst af gaf sjálf út bækur sínar. Tillaga var um að afhenda henni stein sem Lillý á og er úr Hvalfirði.  Ákveðið að festa á hann áletraðan skjöld.  Einnig yrði Elíasabet gerð að heiðursfélaga.  Elísabet og verk hennar yrðu kynnt og t.d.  tekið við hana viðtal.  Á fundinum mundi hún síðan lesa í ca. 30 mín. og þrír félagar fengju síðan 10 mín. hver til ráðstöfunar.  Stungið var upp á Önnu, Eyþóri og Þórði.  Reynt yrði að hafa þennan fund fyrsta fimmtudag í nóvember eða þann 4.

Emma impraði á því að fara inn í lífsleiknitíma hjá skólunum, sem talað var um á síðasta fundi.  Ákveðið var að geyma þá umræðu þar til næst.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið.


Ritlistarhópur Kópavogs
Aðalfundur
í Kórnum 14. okt. 2004

Mættir voru 11 félagar.

Fyrst var borið undir félaga hvort Kristján, Birgir og Unnur yrðu áfram í stjórn og var það samþykkt með einróma.
Lillý greindi frá því að hún og Birgir hefðu farið til Björns Þorsteinssonar og sótt um styrk, 500 þúsund hjá Lista- og menningarsjóði Kópavogs.  Kristján sagði að inn á bók væru ca. 180.000.  Lillý sagði enn fremur að Gunnar Birgisson hefði beðið um bréf, stílað á bæjarráð það sem sótt væri um aðstöðu til upplestrar í Gerðarsafni 1. fimmtudag hvers mánaðar.  Lillý samþykkti að leggja inn umsókn og fylgja málinu eftir. 
Birgir Svan tók upp hugmyndina að heiðra Elísabetu Jökulsdóttur.  Þórður og Birgir samþykktu að taka að sér verkefnið og útfæra það frekar.  Elísabetur yrði greitt 10.000 fyrir upplesturinn.  Reynt skyldi að fá Soffíu Auði Birgisdóttur til að kynna Elísabetu.  Þórður Helgason og Anna S. Björnsdóttir mundu hefja dagskrána með upplestri, síðan mundi Soffía Auður kynna Elísabetu og síðan mundi skáldið sjálft lesa eitthvað úr verkum sínum.  Lillý, Birgir og Þórður munu sjá um að fá áletrun á skjöld sem festur yrði á þann stein sem Elísabet fengi sem heiðursgjöf.
Borin var upp tillaga frá Kristjönu E. Guðmundsdóttur sem hljóðar svo:
,,Á síðasta fundi Ritlistarhóps Kópavogs var rætt um mögulega samvinnu við skóla í Kópavogi að hugsanlegt væri að Ritlistarhópurinn kæmi með fræðslu í ritlist, ljóðagerð og upplestri í lífsleiknitíma skólanna.  Mér finnst þessi hugmynd mjög góð og sting upp á því að Kristjáni Hreinssyni, Birgi Svan, Unni Sólrúnu og Þórði Helgasyni verði falið að gera námsefni, hafa samband við skólastjóra og kynna þeim efnið.  Best tel ég að öll framkvæmdin yrði í höndum þeirra fjórmenninga, en sjálfsagt er að fleiri félagar komi að málinu ef þau vilja og með þarf.
Kristjana E. Guðmundsdóttir

Samþykkt var að haft yrði samband við skólastjóra og kannaður áhugi.  Menn ræddu á hvern hátt þetta yrði best útfært.
Varðandi tónlistarverkefni.  Hægt er að komast í ,,stúdíó" hjá Magnúsi Kjartanssyni.  Athuga með styrkinn frá í voru.  Þórður, Eyþór, Kristján og Birgir ætla að hittast í ,,stúdíóinu".
Ljóðasýningarnar á Café Borg voru næst á dagskrá.  Birgir stakk upp á að t.d. yrði farið í samstarf við Listaháskólann við að undirbúa skemmtilegar og öðruvísi sýningar, t.d. einkasýningar þar sem tjaldað væri yfir eitt borð og þar væri lesið, svo mætti setja heyrnartól við einhver borð þar sem hægt væri að hlusta á upplestur.  Kristján sagði líka frá hugmynd sinni, Ljóðalínan.  Einnig var talað um bæði upplestur og útgáfu erotískra ljóða.
Fleira ekki tekið fyrir.  Fundi slitið

Ritlistarhópur Kópavogs

Fundur í Kórnum 28. okt. 2004



Aðalmál fundarins var afhending ,,Steinsins", sem er viðurkenning afhent nú í fyrsta skipti.  Sá rithöfundur sem hlýtur hnossið nú er Elísabet Jökulsdóttir. 

Fyrst var rætt um umsóknina um aðstöðu í Gerðasafni til fundahalda, þó einkum að komast þar inn næstkomandi fimmtudag til að afhenda Steininn.  Lillý sagði að ekki væri búið að taka umsókn okkar fyrir og Guðbjörg forstöðukona safnsins væri ekki á landinu.  Því  væri ekki hægt að veita leyfi.  Afhendingin færi fram eftir lokun safnsins og klukkutíma opnun fyrir okkur mundi kosta um 25.000.  Umræður spunnust um möguleika í stöðunni og voru allir sammála um að atburðinum yrði ekki frestað.  Kristján Hreinsson ætlaði að taka að sér að tala við Sigurð Geirdal og kanna hvort hann fengist til að afhenda gripinn.  Birgir talaði um mikilvægi þess að félagar mættu  þennan klukkutíma og spurning um hvernig ætti að fá þá til að mæta sem flesta.  Birgir ætlaði að koma tilkynningum í DV og Fréttablaðir, Kristján ætlaði að sjá um Sirrý og RUV og Unnur yrði þeim innan handar ef á þyrfti að halda.  Reyna skyldi að fá Pál á Fréttablaðinu og einhvern á Kópavogspóstinum til að taka viðtal við Elísabetu. Sirrý tók að sér að gera boðskort sem Emma sæi um að dreifa meðal ,,menningarelítunnar" á bæjarskrifstofunum.  Upplesturinn mun verða á fimmtudag, 4. nóv. í Gerðarsafni kl. 17:00.

Fleira ekki tekið fyrir.  Fundi slitið.


Ritlistarhópur Kópavogs
Fundargerð
27.janúar 2005


Dagskrá :

1. útgáfumál
2. upplestrar
3. önnur mál


1. Byrjað var að ræða útgáfumál, þ.e. útgáfu geisladisksins sem hætt var við síðasta vor.  Nú er svo að örfáir félagar hafa séð sér fært að mæta á fundi lengi af ýmsum orsökum eins og gengur. Ljóst væri að útgáfa eins og fyrirhuguð var krefðist mikillar vinnu og enginn fundarmanna átti til þann tíma sem slíkt fyrirtæki mundi útheimta, allir í mikilli vinnu og miklar annir framundan. Kristján lýsti reynslu sinni af útgáfu þar sem listamenn gæfu vinnu sína og sagði slíkt oftast erfitt, tímafrekt og vart leggjandi á einhvern einn að standa í. Listamenn væru oft uppbókaðir og ólíklegt að hægt væri að kalla saman marga í einu til upptöku eða tónleikahalds. Á þeim diski sem við værum að hugsa um væru lögin líklega 18 eða þar um bil og því um marga ólíka listamenn að ræða.  Að ná öllum saman til æfinga og upptöku væri verk sem hann ekki treysti sér til að vinna og aðrir fundarmenn tóku undir það auk þess sem vitað væri nú þegar að upptökukostnaður yrði talsverður þó svo allir aðrir gæfu vinnu sína.  Mönnum fannst spurningin því fremur snúast um tvo valkosti en að halda sig við fyrri áform.   Sá fyrri væri að fá einn undirleikara fyrir öll lögin og í stað þess að lögin yrðu sungin, þá læsu skáldin ljóðin sín við þann undirleik, eða einn eða tveir söngvarar yrðu kallaðir til og syngju öll lögin.  Slíkt væri aftur á móti líklega ekki framkvæmanlegt, því margir væru þegar með ákveðna flytjendur í huga og búið að tala við suma um flutning.  Hinn valkosturinn væri að fresta þessari útgáfu enn frekar, en að félagar í Ritlistarklúbbnum mundu skila inn einu ljóði sem annað hvort tengdist Kópavogi eða fjallaði um bæinn og þetta yrði að hafa borist fyrir febrúarlok.  Þetta mundi tengjast afmæli Kópavogsbæjar sem verður haldið upp á þann 11. maí.  Ljóðin mundu höfundar síðan lesa inn á disk.  Svo yrði gefin út bók með kynningum á skáldunum og ljóðunum sjálfum og diskurinn mundi fylgja þar með. Hámarkslengd ljóðs yrði að það tæki ekki lengri tíma í flutningi en þrjár mínútur.  Fundarmönnum leist betur á þessa síðari tillögu og var hún samþykkt.  Þá kom fram sú tillaga að tileinka diskinn Sigurði heitnum Geirdal, fyrrum félaga og þá yrði Sjón fenginn til að lesa eitt ljóða Sigurðar á diskinn.  Þetta hlaut góðan hljómgrunn.   Samþykkt var að Unnur mundi senda bréf til félaga og biðja þá sem vildu vera með á þessum diski að gefa svar sem fyrst.

2. Þá voru það upplestrar.  Kristján kynnti tillögu þess efnis að ákveða nú þegar ljóðaupplestra fram til vors.  Upplestrarnir verða í Kórnum og þar mun Hrafn sjá um að selt verði kaffi og meðlæti til gesta.  Þessu var vel tekið og voru upplestrar ákveðnir skv. eftirfarandi:



10. feb. kl. 17:30 -     Upplestur í Kórnum.  Hrafn mun lesa.  Nánar auglýst síðar.
10. mars. kl. 17:30. - Upplestur í Kórnum.
7. apríl. kl. 17:30. -    Upplestur í Kórnum


Þá voru félagsfundir samþykktir á eftirfarandi tímum:

3. feb. kl: 17:00
24. feb.       kl. 17:00
17. mars.   kl. 17:00
14. apríl.    kl. 17:00

3. Búið er að bjóða félögum úr Ritlistarhópnum að lesa á Kaffi Reykjavík í mars.  Mælst er til að sem flestir taki þátt.  Auglýst eftir þátttakendum síðar.

Fleira ekki tekið fyrir.  Fundi slitið.

Unnur Sólrún

Smelltu hér til að lesa fundargerðir 2006
FUNDARGERÐIR  2006
Fundargerð Ritlistarhóps Kópavogs haldinn í Kórnum 9. febrúar 2006.

1.Unnur Sólrún fræddi um þann stórviðburð að hún seldi fyrsta ljóðið sitt skv. gjaldskrá. Klappaði þingheimur fyrir henni og samgladdist innilega. Hún hefur sett upp kynningu á þessari þjónustu sinni á vefslóðinni: http://www.visur.homestead.com/us.html
2.Rætt um næsta upplestur á fimmtudaginn kemur; Fyrsti upplestur ársins á vegum Ritlistarhóps Kópavogs verður í Heita pottinum á 2. hæð Bókasafns Kópavogs í Safnahúsinu, Hamraborg 6a fimmtudaginn 16. febrúar n.k. Þá munu þau Birgir Svan Símonarson og Unnur Sólrún Bragadóttir lesa úr nýjustu bókum sínum og Sigrún Oddsdóttir úr handritum sínum. Heitt á könnunni og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Það hefst klukkan rúmlega fimm á fimmtudaginn! Klukkan 17.15!
3.Sagt frá breytingum og nýjum upplýsingum á vefsíðu Bókasafnsins/Ritlistarhópur http://www.bokasafnkopavogs.is og félagar hvattir til að senda Hrafni upplýsingar. Unnur Sólrún ætlar líka að endurræsa og uppfæra vef sinn um Ritlistarhópinn – því þar er margt skemmtilegt að sjá. Þetta er slóðin á þá síðu: http://www.ritlist.homestead.com/1.html
4.
Hrafn minnti á bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar en skilafrestur á handriti að ljóðabók er til 1. maí n.k. Vogun vinnur vogun tapar – 600 þús. krónur! sendist á
Utanáskrift:
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra menningarmála, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Vesturgötu 1, 2.hæð, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu menningarmála s. 5901520 og 5901521.

Smellið á dagsetningu til að lesa fundargerð.

9. FEBRÚAR
23. febrúar
9. mars




Fundur 23. febrúar í Ritlistarhópi Kópavogs í Kórnum í Bókasafni Kópavogs.

þessir „ritlarar mættir”: Eyþór og frændi hans Hjörtur Harðarson, Hrafn, Sigrún Odds og Lillý.

Nýr ritlari boðinn velkominn. Spjallað við hann vítt og breitt.

Ákveðið að hittast næsta fimmtudag í nýju Harma- (úps nei), Hamragrilli kl. 17.17 (eða bara kl. 17, þeir sem það geta) til að kanna aðstæður og finna lyktina af staðnum, sem nú er bjartari, stærri og huggulegri en var. (þessi er við hlið Subbuvegar, hins vegar við Rebba, en þar fást íslenskar subbur!) Á Hamragrilli væri hugsanlega hægt að vera með upplestra í góðu samstarfi við staðarhaldara – það mun verða kannað til hlítar. Þarna er hægt að kaupa kaffi, öl og mat. Þarna gæti orðið Mekka kópvogskra skálda og listamanna, listamannakrá eins og á Capri forðum, ha? Fundarmenn voru sammála um það að reglulegir upplestrar, alltaf á sama stað og á sama tíma væri besta auglýsingin og myndi er fram líða stundir draga að sér sífellt fleiri áheyrendur og þátttakendur.
„Kveðskap fyrir kvöldmat” – endurvakið.

rætt um næsta upplestur og upplestra. Sjá hér að neðan.

Sigrún stakk upp á útrás að Reykjalundi og að stefna bæri á árlega heimsókn þangað, að fenginni góðri reynslu. Var vel tekið í það og málið sett í nefnd?? Auglýst er hér með eftir áhugasömum félögum í verkið. Þá var aftur tekinn upp þráðurinn varðandi MK (Menntaskólann í Kópavogi) og lagði Eyþór fram upplýsingar af rannsóknum sínum. Mun vera um að ræða íslenskukennara að nafni Heimir og svokallaða MK – daga. Nýi meðlimurinn hann Hjörtur kom með þá frábæru hugmynd að við efndum til ljóðasamkeppni meðal nemenda MK og fengju tvö ljóð þá viðurkenningu að vera með í Leiðabók. Með þessu ynnist tvennt: nýtt blóð í hópinn og betri tengsl inn í æskuljóma menntaskælunnar. Var lagt til að dómnefnd skipuðu  fyrrnefndur Heimir í MK, einn fulltrúi Ritlistarhópsins og e.t.v. nýjasti handhafi Ljóðstafsins hann Óskar Árni (ef hann fæst til þess án greiðslu). Aðrar hugmyndir eru líka vel þegnar.
Þá kom einnig hugmynd um útrás til Þorkákshafnar en þar er mikill menningaráhugi og hefur Hrafn þegar lagt þar inn gott orð – til athugunar síðar.

Þá var komið að því að setja fram tillögur um upplestra fram á vor:

2. marsEinhver áhugasöm Kópavogsskáld
9. marsEinhver áhugasöm Kópavogsskáld
16. marsÓskar Árni fenginn til að koma með Stafinn og lesa úr verkum sínum
23. marsMegas og Hallgrímur Pétursson?
30.3. Þóra Jónsdóttir og ? Þorsteinn frá Harmri?
6. aprílMagga Stína og Magga Lóa (kannski Magga Jóels líka?)
(13. og 20. apríl eru frídagar)
27. aprílBjörk Guðmundsdóttir og Bragi Ólafs og /eða Sjón?
4. maíDaði Guðbjörnsson og Steinþór fara á kostum með ljóði og mynd (hugmyndin að skáld og myndlistarmaður spinni saman og tvinnist...
11. maíAfmæli Kópavogsbæjar – Kópavogsskáldin lesa í belg og biðu.
18. maíFjallaljóð (valin fjallaljóð verða til sýnis í Bókasafninu í tilefni af yfirlitssýningu á verkum Guðmundar frá Miðdal) og munu þeir sem lyst hafa lesa upp fjallaljóð, bæði sín eigin og annarra.

Ein hugmynd var að fá Hjört Pálsson til að lesa úr Kvæðakveri Halldórs Laxness og líkja eftir Nóbelskáldinu... t.d. nærri afmælisdegi hans 23. apríl, sem er alþjóða bókadagurinn.... hvernig litist Hirti á það?
og svo er það vorferðin út í guðsgræna.....?

fundargerð ritaði Hrafn eftir bestu samvisku.

Fundargerð 9. mars.

Mættir voru Eyþór, Ólöf og Hjörtur Pálsson. Eyþór minntist á upplesturinn fimmtudaginn 16. mars og einnig á ferðina til Þorlákshafnar sem verður 23. mars. Fólk er beðið að láta Hrafn vita hvort það fer til Þorlákshafnar eða ekki. Næst barst Leiðabókin í tal og Eyþór sagði frá því að hann væri búinn að tala við fagstjórann í íslensku í MK, sem heitir Guðbjörn, um ljóðasamkeppni og líst þeim manni vel á þá hugmynd. 

Eyþór mun í samvinnu við Hrafn búa til auglýsingu sem verður hengd upp í MK um ljóðasamkeppnina. Næst var rætt um enskar þýðingar á ljóðunum í Leiðabókinni og sagði Hjörtur að þýðingar á ljóðum væru vandasamt og viðkvæmt verkefni.  Eyþór sagði að best væri að hvert skáld skilaði sínu ljóði inn þýddu á ensku en síðan væri fenginn einhver sem hefur ensku að móðurmáli til að prófarkalesa ensku ljóðin. Íslenku ljóðin verða að sjálfsögðu líka prófarkalesin. Eyþór sagði líka að þar sem heimurinn væri orðinn svo smár með tilkomu internetsins að það væri hægt að e-maila til einhvers virts enskumælandi rithöfundar og biðja hann um að lesa ensku ljóðin yfir. Eyþór sagði líka frá hugmynd Hrafns um að það gæti verið sniðugt að hafa ljóðin skrifuð ofan í mynd.  Þetta er hugmynd sem þarf að taka afstöðu til, hvort fólk vill hafa hana eða ekki og í hvaða formi.

Fleira ekki gert og fund slitið.