Munið að senda mér ljóð mánaðarins til birtingar. unnursol@hotmail.com
Munið að vera dugleg að yrkja !!!!!

Hér með er minnt á fundinn á miðvikudaginn 30. apríl
kl. 17 í Kórnum þar sem skila á lukkuljóðunum fyrir
uppákomuna á Listatúni laugardaginn 3. maí n.k. Þá
verður einnig farið nánar yfir skipulagningu á
ljóðaupplestrinum svo og önnur atriði varðandi þessa
fyrirhuguðu uppákomu Ritlistarhópsins.
Lukkuljóð dagsins.
Leiðbeiningar um frágang á lukkuljóði.
Hver og einn félagi leggur til ljóð sem hann prentar á litaðan pappír (A4, gulan, rauðan, grænan eða bláan) og hverjum og einum er í sjálfs vald sett hvort hann velur einn lit að fleiri. Fjöldi blaðann má vera 20-30.
Eitt ljóð á hverju blaði. Hver og einn ræður því hvort hann er aðeins með eitt ljóð prentað í 20-30 eintökum eða fleiri.
Ath. Setja skal efst á blaðið:
Kópavogsdagar 2008.
Þegar búðið er að prenta ljóðið er blaðinu rúllað upp og bundið utan um það með bandi og að endingu er hnýtt slaufa. Böndin mega vera eftir smekk hvers og eins.
Nauðsynlegt er að hefta bandið við blaðið áður en blaðinu er rúllað upp svo ekki verði bönd út um allt þegar gestir hafa skoðað lukkuljóðin sín.
Gaman væri að hafa ljóðin þannig að þau höfði sérstaklega til lesandans. Ekki myndi spilla fyrir ef einhver kæmi með ljóð sem eru sérstaklega fyrir börn.
Lukkuljóðunum verður blandað saman í svokallaðan ljóðapott. Síðan verður gestum boðið að draga lukkuljóð dagsins úr pottinum.