Birgir Svan er fæddur í Reykjavík árið 1951. Hann nam bókmenntir og ensku við H.Í. og stundar kennslu. Hann er einn af Listaskáldunum vondu. Eftir hann eru ljóðabækurnar: Hraðfryst ljóð 1975 og 6 / Nætursöltuð ljóð 1976 / Gjalddagar 1977 / Ljóð úr lífsbaráttunni 1980/ Fótmál 1983/ Líflínur 1985 / Stormfuglar 1987 / Farvegir 1988 / Á fallaskiptum – Úrval 1989 / Ljóð handa ósýnilegu fólki 1991/ Vatnið gengur í svefni 1993 / Sniglapóstur 1995 / Ferð mín góð1997 / Laufsegl 2000/ Fjall í hvítri skyrtu 2003 / Áningarstaður augnabliksins 2005.
Kristján Hreinsson
Kristján Hreinsson fæddist í Reykjavík 7. janúar 1957 en ólst upp í Kópavogi og byrjaði þar ungur að yrkja. Hann sendi frá sér fyrstu bókina á unglingsárunum og hefur síðan samið fjöldann allan af ljóðum, söngtextum og leikritum, auk þess sem hann hefur skrifað óbirtar skáldsögur, stundað þýðingar og stjórnað útvarpsþáttum. Hann nam leikhúsfræði við háskólann í Bergen í nokkur ár. Í dag býr Kristján í Skerjafirðinum og skrifar jöfnum höndum leikrit, skáldsögur, ljóð og söngtexta.
Kristján Hreinsson var skáld Ritlistarhóps Kópavogs í apríl 2004 í Café Borg.
Ritverk
1974 Málverk, ljóð
1975 Friðryk, ljóð
1975 Og, ljóð
1981 Andandi, ljóð
1989 Vogrek, ljóð
1991 Mannhaf, ljóð
Leikverk og tónverk – sjá vef Rithöfundasambands Íslands undir félagar
Smelltu á nafn þess rithöfundar sem þú vilt fræðast um .
Sigríður Helga Sverrisdóttir hefur verið virkur félagi í Ritlistarhópnum og á ljóð í Ljósmáli og Sköpun. Auk þess hafa birst eftir hana ljóð í blöðum og bókum. Fyrsta ljóðabók hennar, Rauður snjór, kom út árið 2002